Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. apríl 2021 12:31
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: JOE 
Kane sagður vilja losna komist Tottenham ekki í Meistaradeildina
Fer Harry Kane frá Tottenham?
Fer Harry Kane frá Tottenham?
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar fullyrða í dag að Harry Kane muni óska eftir því að vera seldur frá Tottenham í sumar fari svo að liðið komist ekki í Meistaradeildina.

Athletic sagði fyrst frá þessu en miðillinn segir að Kane sé að missa þolinmæðina á að bíða eftir að Tottenham komist í þá stöðu að berjast um að vinna titla.

Liðið náði ekki Meistaradeildarsæti á síðustu leiktíð og ef það endurtekur leikinn er talið að Kane kveðji Lundúnarliðið.

Athletic segir að ef svo fari að Kane leiti á önnur mið sé líklegt að hann fari norður á bóginn þar sem bæði Manchester United og Manchester City gæti orðið næsti áfangastaður.

Kane er samningsbundinn Tottenham til næstu þriggja ára en félagið hefur ekki séð titil síðan árið 2008. Þeir keppa þó til úrslita í Caraboa Cup síðar í apríl.
Athugasemdir
banner
banner