Real Madrid fór með sigur af hólmi gegn Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Real Madrid hefur núna unnið þrjá El Clasico leiki í röð í spænsku úrvalsdeildinni og er það í fyrsta sinn sem það gerist frá árinu 1978.
Karim Benzema og Toni Kroos skoruðu mörk Madrídinga í kvöld en Oscar Mingueza gerði mark Barcelona.
Annar áhugaverður tölfræðimoli frá kvöldinu er það að Lionel Messi hefur ekki skorað í sjö leikjum í röð gegn Real Madrid. Hann skoraði síðast gegn Real þegar Cristiano Ronaldo var leikmaður Real.
Messi komst nálægt því að skora í kvöld þegar hornspyrna hans endaði í stönginni.
◉ Real Madrid 2-0 Barcelona
— Squawka Football (@Squawka) April 10, 2021
◉ Barcelona 1-3 Real Madrid
◉ Real Madrid 2-1 Barcelona
Real Madrid have won three consecutive #ElClasico games in LaLiga for the first time since 1978. 😲 pic.twitter.com/DDzQv35xBs
Cristiano Ronaldo has the same amount of El Clasico goals as Lionel Messi since he left Real Madrid 3 seasons ago. pic.twitter.com/5QzRWnWXfN
— Footy Humour (@FootyHumour) April 10, 2021
Athugasemdir