Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. apríl 2021 08:00
Victor Pálsson
Rojo segir Cavani vilja semja við Boca
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani hefur mikinn áhuga á að ganga í raðir Boca Juniors að sögn varnarmannsins Marcos Rojo.

Rojo er í dag leikmaður Boca en hann yfirgaf Manchester United fyrr á árinu sem er einmitt lið Cavani í dag.

Boca er talið hafa mikinn áhuga á Cavani sem verður samningslaus á Old Trafford í sumar.

„Ég ræði mikið við Cavani, við vorum saman í fjóra eða fimm mánuði í Manchester og hann er frábær manneskja," sagði Rojo.

„Þegar ég sagði honum frá möguleikanumn að koma til Boca þá sagðist hann nú þegar hafa talað við Juan Roman Riquelme og var mjög hrifinn af því."

„Hann hefði áhuga á því í framtíðinni. Hann þarf að taka þá ákvörðun með fjölskyldunni."
Athugasemdir
banner
banner
banner