Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, verður gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Tómas Þór verða á sínum stað milli 12 og 14.
Landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted, Noregsmeistari hjá Bodö/Glimt verður á línunni. Norski boltinn er ekki farinn af stað en upphafi deildarinnar var frestað vegna Covid-19 faraldursins.
Þá verður fjallað um Meistaradeild Evrópu og spáð í spilin fyrir seinni leiki 8-liða úrslita keppninnar. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins, rýnir í viðureignirnar.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir