Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 10. apríl 2021 17:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Salah: Maður hugsar 'ó nei, ekki aftur'
Mo Salah.
Mo Salah.
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah var maður leiksins þegar Liverpool vann endurkomusigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Salah segir að það hafi verið mikill léttir af þessum sigri enda hefur ekki gengið vel á heimavelli að undanförnu.

„Þetta var frábær leikur, erfiður leikur en við náðum í sigur og það er það mikilvægasta," sagði Salah.

„Við höfum tapað nokkrum leikjum hérna (á Anfield) og maður hugsar með sér: 'ó nei, ekki aftur' en við stóðum okkur vel í seinni hálfleiknum."

„Þetta er mjög mikilvægur sigur þegar það er lítið eftir af tímabilinu. Við viljum spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en við þurfum bara að einbeita okkur að einum leik í einu. Við þurfum að reyna að vinna þá alla og vonandi getum við náð fjórða sætinu," sagði Salah en Liverpool komst upp í fjórða sæti með sigrinum. Útlit er fyrir það að Chelsea sé þó að stökkva upp fyrir Liverpool með sigri gegn Crystal Palace í leik sem er núna í gangi.
Athugasemdir
banner
banner
banner