Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. apríl 2021 06:00
Victor Pálsson
Segir Dembele henta Liverpool fullkomlega
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele myndi henta leikstíl Liverpool fullkomlega að sögn fyrrum framherja liðsins, John Barnes.

Dembele er samningsbundinn Barcelona á Spáni en hann er oft orðaður við brottför eftir bæði góða og slæma tíma á Nou Camp.

Barnes fylgist mikið með Frakkanum og telur að hann gæti spjarað sig vel á Anfield.

„Einn leikmaður sem ég tel geta náð árangri hjá Liverpool er Ousmane Dembele. Hann myndi henta spilamennsku framlínunnar fullkomlega," sagði Barnes.

„Af öllum þeim sem eru orðaðir við Liverpool þá er hann einhver sem stuðningsmenn ættu að vera spenntir yfir. Ef hann vill spila fyrir stærstu liðin eins og Barcelona þá er Liverpool rétta félagið."

„Hann hentar leikstíl Liverpool og ég held að hann sé leikmaður sem þeir hafi áhuga á."
Athugasemdir
banner
banner