sun 10. maí 2020 13:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hemmi Hreiðars einn af bestu liðsfélögunum - „Algjör brjálæðingur"
Mynd: Getty Images
Hermann Hreiðarsson er á meðal leikmanna sem fyrrum sóknarmaðurinn Darren Bent velur í Ipswich Town úrvalslið sitt.

Bent hóf ferilinn með Ipswich og lék með aðalliðinu þar frá 2001 til 2005. Þar var hann liðsfélagi Hermanns sem lék í Ipswich til 2003.

Bent stillir upp í 4-4-2 í úrvalsliði liðsfélaga sinna hjá Ipswich og setur hann Hermann í vinstri bakvörðinn. Hann lýsir Íslendingnum sem algjörum brjálæðingi.

„Hann var algjör brjálæðingur. Ég naut þess að spila bæði með honum hjá Ipswich og Charlton. Hann var sterkur, gat hlaupið allan daginn og var frábær karakter innan sem utan vallar," segir Bent um Hermann.

Hermann spilaði allan sinn atvinnumannaferil á Englandi og í dag er hann aðstoðarstjóri Southend í ensku C-deildinni.

Hérna má sjá úrvalslið Darrent Bent.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner