Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 10. maí 2020 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Manchester City vill fá ungan leikmann PSG
Mynd: Getty Images
Ríkjandi Englandsmeistarar Manchester City vill næla í Edouard Michut, ungan miðjumann Paris Saint-Germain. Þetta segir í frétt Sky Sports.

Michut er 17 ára gamall og vill City reyna að kaupa hann í sumar. Ef það tekst ekki þá ætlar félagið að reyna að semja við hann þegar hann verður samningslaus sumarið 2021. City þyrfti þá aðeins að borga PSG uppeldisbætur fyrir hann.

Önnur stór félög eru á eftir Michut, sem hefur verið líkt við Marco Verratti, miðjumann PSG.

Michut er í U17 landsliði Frakklands og hafði verið að standa sig mjg vel með U19 liði Parísarfélagsins áður en kórónuveirufaraldurinn skall á.

Athugasemdir
banner
banner