þri 10. maí 2022 23:33
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Hvíti riddarinn skoraði sjö mörk í opnunarleiknum
Hvíti riddarinn fer vel af stað
Hvíti riddarinn fer vel af stað
Mynd: Hanna Símonardóttir
Hvíti riddarinn 7 - 0 KFB
1-0 Eiður Andri Thoraransen ('11 )
2-0 Björgvin Heiðar Stefánsson ('23 )
3-0 Kolfinnur Ernir Kjartansson ('45 )
4-0 Eiður Andri Thoraransen ('57 )
5-0 Patrekur Orri Guðjónsson ('70 )
6-0 Patrekur Orri Guðjónsson ('71 )
7-0 Ísak Máni VIðarsson ('83 )

4. deild karla fór af stað með pomp og prakt í kvöld en Hvíti riddarinn kjöldró KFB, 7-0, í A-riðlinum á Malbikstöðinni að Varmá.

Heimamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik en mörkin skoruðu þeir Eiður Andri Thoraransen, Björgvin Heiðar Stefánsson og Kolfinnur Ernir Kjartansson.

Eiður Andri gerði annað mark sitt á 57. mínútu áður en Patrekur Orri Guðjónsson gerði tvö mörk tæpum tveimur mínútum.

Ísak Máni Viðarsson gerði sjöunda og síðasta mark Hvíta riddarans sjö mínútum fyrir leikslok. Draumabyrjun hjá liðinu í fyrsta leik deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner