Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 10. júní 2018 10:41
Elvar Geir Magnússon
Gelendzhik
Alfreð og Birkir Bjarna æfðu einir
Icelandair
Birkir ásamt Frikka sjúkraþjálfara.
Birkir ásamt Frikka sjúkraþjálfara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason æfðu ekki með hópnum á fyrstu æfingu í Rússlandi.

Aron er í kapphlaupi við tímann til að vera klár fyrir fyrsta leik Íslands á HM, leikinn gegn Argentínu næsta laugardag.

„Við erum ekki í nokkrum vafa um að hann verði klár í Argentínuleikinn ef þetta heldur áfram svona," sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi eftir 2-2 jafnteflið gegn Gana í vináttulandsleik á fimmtudaginn.

Birkir Bjarnason bað um skiptingu í leiknum gegn Gana en hann var eitthvað meiddur. Alfreð Finnbogason var einnig á séræfingum í dag og æfði ekki með liðinu.

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari var spurður út í stöðuna á mönnum eftir æfinguna.'

„Það er flugþreyta, sumir sváfu illa og eru stífir eftir leikinn. Við vildum fara varlega í sakirnar á fyrstu æfingu og menn máttu stíga út úr henni þegar þeir vildu," sagði Heimir.

Hjörtur Hjartarson spurði hann þá hvort hann myndi segja frá því ef Birkir væri tæpur.

„Já já. Hann var stífur í rassvöðva eftir leikinn. Hann fékk krampa í hann í leiknum. Það er bara það. Við viljum ekki taka neinar áhættur."
Heimir Hallgríms: Ánægðir með Rússana
Athugasemdir
banner
banner
banner