„Öll aðstaða lítur vel út og við erum að koma okkur fyrir. Æfingasvæðið lítur vel út og við erum ánægðir hvað Rússarnir hafa gert vel. Allt er mjög faglegt," sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari eftir fyrstu æfingu í Rússlandi.
„Við erum ánægðir með hvað er búið að breyta miklu á hótelinu og á æfingasvæðinu. Fyrir ári síðan var þetta svæði bara rústir einar og núna er þetta algjörlega til fyrirmyndar."
Sjáðu viðtalið i heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir Heimir sig einnig um stöðuna á mönnum.
Athugasemdir