Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   sun 10. júní 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Helgi Kolviðs: Líf Heimis er í tölvunni
Icelandair
Helgi sáttur í sólinni í Gelendzhik í dag.
Helgi sáttur í sólinni í Gelendzhik í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég sakna þess ekkert að þurfa að skafa bílinn minn áður en ég fer á æfingu," sagði Helgi Kolviðsson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, léttur í bragði eftir æfingu í sólinni í Gelendzhik í dag.

Æfingasvæði Íslands í Gelendzhik er glæsilegt en það var búið til sérstaklega fyrir landsliðið.

„Það var eins og það hefði verið hent sprengju hér inn á sínum tíma þegar við skoðuðum völlinn. Okkur leist vel á hvað þeir voru að plana og áætluðu að gera og hafa uppfyllt allt sem þeir sögðust ætla að gera. Það var gamalt gervigras sem var verið að rífa af þegar við komum fyrst hingað. Þeir tóku allt í gegn og þetta stóðst allt."

Brottför íslenska landsliðsins tafðist í gær eftir að Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, setti töskuna sína óvart í ranga rútu. Sú rúta var á leið í Stykkishólm en ekki í Leifssötð.

„Þetta var óvanalegt hjá honum því tölvan hans var í töskunni. Ég hef aldrei séð hann utan æfinga án tölvunnar," sagði Helgi.

„Öll hans vinnan undanfarin 18 ár er í þessari tölvu. Það þyrfti þrjú ár til að fylla þennan gagnabanka. Lífið hans er í tölvunni."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar talar Helgi meðal annars um það hversu mikið er að gera hjá starfsfólki landsliðsins fyrstu dagana í Rússlandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner