Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. júní 2021 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Griezmann: Messi getur breytt melónu í kavíar
Antoine Griezmann og Lionel Messi eru félagar
Antoine Griezmann og Lionel Messi eru félagar
Mynd: EPA
Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann segir það afar þægilegt að spila með argentínska leikmanninum Lionel Messi.

Mikið hefur verið rætt og ritað um samband þeirra tveggja en það hefur lengi verið talið að samband þeirra sé slæmt og hefur verið frá því Griezmann kom til Barcelona frá Atlético Madríd árið 2019.

Griezmann segir þó ekkert hæft í þessum sögusögnum og að þeim komi afar vel saman.

„Samband okkar er gott. Við náum vel saman. Við skrifumst stundum á og tölum mikið saman á æfingum," sagði Griezmann við L'Equipe.

„Það er augljóslega mjög auðvelt að spila með honum. Þú sendir honum melónu og hann breytir henni í kavíar. Það er ekki mikil pressa þegar við sendum boltann á hann."

„Hlutirnir verða betri og betri. Þetta ár var svolítið flókið því það var mikið um meiðsli og við spiluðum kerfi þar sem allir leikmennirnir voru kannski ekki að spila í réttum stöðum en við hefjum nýtt tímabil með nýjum leikmönnum og þá verða hlutirnir betri,"
sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner