„Súrt að fá ekki þrjú stig en úr því sem koma var er stig bara solid. Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik en ég held að við virðum bara stigið og förum í næsta leik, einbeitum okkur að honum" sagði Gabríel Aron Sævarsson, leikmaður Hauka eftir 2-2 jafntefli gegn Kormáki/Hvöt í 2. deildinni.
Lestu um leikinn: Haukar 2 - 2 Kormákur/Hvöt
Var erfitt að spila gegn Kormáki/Hvöt í dag?
„Já, þeir voru seigir, þeir voru miklu sterkari í byrjun leiks en við. Þeir voru búnir að gefa miklu meira í þetta. Við komum okkur inn í þetta í seinni hálfleik og fengum okkur eitt stig, það er bara solid."
Gabríel spilaði fyrir ÍR og Keflavík í Lengjudeildinni síðasta sumar, hann segir að það sé ekki mikill munur á Lengjudeildinni og 2. deildinni.
„Ekkert svoleiðis. Þetta er bara fullt af gæða leikmönnum. Kannski leikmenn sem eru að taka eins og ég, smá skref niður til þess að taka tvö upp á við. Þetta eru gæða leikmenn, gæða leikmenn alls staðar, góðir útlendingar sem eru komnir í þessa deild sem eru reyndir og góðir leikmenn. Eins og þú sérð við erum með Einar Karl, Pablo og leikmenn sem hafa unnið Íslandsmeistaratitla. Þetta er bara geðveik deild."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

























