Haukar tóku á móti Kormáki/Hvöt í kvöld og endaði leikurinn 2-2. Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn, honum fannst úrslitin ekki vera sanngjörn.
Lestu um leikinn: Haukar 2 - 2 Kormákur/Hvöt
„Það er erfitt að halda því fram eftir færin í leiknum. En við komum okkur í vonda stöðu og allavega náðum að moka okkur næstum því upp úr þessu en það tókst ekki í dag. "
Var leikurinn kaflaskiptur?
„Nei, mér fannst við vera mjög sloppy og og slappir í fyrri hálfleik. Það var eitthvað kæruleysi, mögulegt vanmat, ég veit það ekki. En mér fannst við koma virkilega sterkir í seinni hálfleik og gera nóg til þess að ná að vinna þennan leik. Markmaður þeirra er með tvær þrjár heimsklassa vörslur og við kannski ekki alveg nógu clever í þessum litlu mómentum."
Hvernig meturðu stöðuna eftir sjö leiki?
„Hún er bara fín, við erum á toppnum. Það er þar sem við viljum vera og við ætlum að halda áfram að keppast við það að halda okkur þar. Þetta var bara einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á. Við tökum þessu stigi, setjum það í pokann okkar og höldum áfram. Það er nóg eftir af þessu, þetta er rétt að byrja."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan























