Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   mið 10. júní 2026 03:37
Atli Arason
Auburn, Alabama
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Messi breytti leiknum
Orri Steinn Óskarsson, fyrir leikinn gegn Argentínu
Orri Steinn Óskarsson, fyrir leikinn gegn Argentínu
Mynd: KSÍ

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði Íslands, vildi meina að innkoma Lionel Messi í 3-0 tapinu gegn Argentínu hafi skipt sköpum í tapi liðsins gegn heimsmeisturunum í Alabama í nótt.


Lestu um leikinn: Argentína 3 -  0 Ísland

Auðvitað er svekkjandi að við náðum ekki að halda þessu aðeins minni, úrslitunum. Yfir allt þá getum við verið ánægðir með frammistöðuna, hvernig við bárum okkur og hvernig við mættum besta landsliði í heimi, þannig að ég er yfir allt jákvæður og sáttur með liðið,“ sagði Orri í viðtali við Fotbolti.net eftir leik.

Þeir sýndu gæðin sín á síðasta þriðjung. Þegar einn ákveðinn aðili kemur inn á þá breytist leikurinn svolítið og hlutirnir fara að tikka. Við verðum bara að virða það og gefa honum kredit. Við hefðum vel getið haldið þeim í 1-0 en svekkjandi að fá á sig annað og þriðja markið,“ bætti Orri við og átti þar við Messi, sem kom inn af varamannabekknum á 70. mínútu.

hann byrjar að skapa mikinn usla á milli línanna hjá okkur og kom með eitthvað sem þeim hafði vantaði í leiknum. Mér fannst við loka á þá mjög vel en svo þegar hann kemur inn á þá náðum við ekki að halda [aftur á honum] nógu vel. Hann er náttúrlega bara eins og hann er og maður verður bara að virða það,“ sagði Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði Íslands.

Viðtalið við Orra má nálgast í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner