Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. júlí 2018 16:44
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Frakklands og Belgíu: Umtiti, Fellaini og Giroud byrja leikinn
Hlutlaus áhorfandi á leiknum í Pétursborg.
Hlutlaus áhorfandi á leiknum í Pétursborg.
Mynd: Getty Images
Klukkan 18:00 hefst undanúrslitaleikur Frakklands og Belgíu í Pétursborg í Rússlandi. Andres Cunha, dómari frá Úrúgvæ, heldur um flautuna.

Blaise Matuidi kemur aftur í lið Frakklands eftir leikbann en Corentin Tolisso leysti hann af gegn Úrúgvæ.

Olivier Giroud heldur byrjunarliðssæti sínu þrátt fyrir að hafa enn ekki átt skot á markið á mótinu!

Hjá Belgum er hægri vængbakvörðurinn Thomas Meunier í leikbanni. Fellaini er áfram í byrjunarliðinu og Mousa Dembele kemur inn.

Byrjunarlið Frakklands: Lloris; Pavard, Varane, Umtiti, Lucas Hernández; Pogba, Kanté, Matuidi; Mbappé, Giroud, Griezmann.

Byrjunarlið Belgíu: Courtois; Alderweireld, Kompany, Vertonghen, Chadli, Witsel, Fellaini, Dembele, De Bruyne, Lukaku, Hazard.


Athugasemdir
banner