Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. júlí 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Championship fréttir - Hull kaupir og Rhodes til Norwich
Jordan Rhodes hefur komið víða við.  Núna er hann mættur til Norwich.
Jordan Rhodes hefur komið víða við. Núna er hann mættur til Norwich.
Mynd: Getty Images
Hull er búið að kaupa Reece Burke.
Hull er búið að kaupa Reece Burke.
Mynd: Getty Images
Það er nóg um að vera í ensku Championship deildinni þessa dagana þar sem leikmenn ganga kaupum og sölum. Hér að neðan má sjá nokkra fréttamola.



-Hull hefur fest kaup á varnarmanninum Reece Burke en hann kemu frá West Ham yfir óuppgefna fjárhæð. Hinn 21 árs gamli Burke þekkir Championship deildina því hann var á láni hjá Bolton á síðasta tímabiili.

- Hull hefur einnig keypt serbneska framherjann David Milinkovic frá Genoa á Ítalíu. Hinn 24 ára gamli Milinkovic skoraði sex mörk í 24 leikjum í skosku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili þar sem hann var í láni hjá Hearts.

- Norwich hefur fengið framherjann Jordan Rhodes á láni frá Sheffield Wednesday. Rhodes er reyndur markaskorari í Championship en hann hefur skorað 180 mörk í 389 deildarleikjum á ferlinum. Norwich hefur einnig krækt í þá Emi Buendia, Moritz Leitner, Teemu Pukki, Ben Marshall og Felix Passlack í sumar.

- Franski framherjinn Yann Kermorgant hefur náð samkomulagi við Reading um að losna undan samningi. Hinn 36 ára gamli Kermorgant kom til Reading frá Bournemouth árið 2016 en síðan þá hefur hann skorað 24 mörk í 92 leikjum. Meiðsli settu strik í reikninginn á síðasta tímabili en þá skoraði hann einungis tvö mörk í 27 leikjum.

- Swansea er að kaupa kantmanninn Joel Asoro frá Sunderland á um það bil tvær milljónir punda. Þessi 19 ára gamli Svíi verður fyrsti leikmaðurinn sem Graham Potter fær til Swansea eftir að hann tók við liðinu. Asoro skoraði þrjú mörk í 29 leikjum þegar Sunderland féll úr Championship deildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner