Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. júlí 2018 16:15
Magnús Már Einarsson
Fékk sér húðflúr af Harry Maguire
Húðflúrið er risastórt á brjóstkassanum á Matt.
Húðflúrið er risastórt á brjóstkassanum á Matt.
Mynd: Twitter
Harry Maguire hefur slegið í gegn með enska landsliðinu á HM í Rússlandi en hann skoraði fyrra markið í sigrinum á Svíum í 8-liða úrslitunum um helgina.

Á EM fyrir tveimur árum var enska landsliðið langt frá huga Maguire en hann var þá á mála hjá Hull.

Góð frammistaða hans með Hull varð til þess að Leicester keypti hann í fyrra og þar hefur ævintýrið haldið áfram.

Maguire ólst upp í Sheffield og hóf meistaraflokksferil sinn með Sheffield United.

Matt Benton, frá Sheffield, ákvað að ganga skrefi lengra í aðdáun sinni og setja húðflúr af andliti Maguire á brjóstkassann á sér.

Matt birti mynd á Twitter af verkinu en myndin er hér til hliðar.

„Trúi ekki því sem ég er að sjá. Frábærlega gert," sagði Maguire sjálfur á Twitter þegar hann sá verkið.

Maguire ætlar einnig að senda Matt áritaða enska landsliðstreyju fyrir húðflúrið.

Sjálfur hefur Maguire vakið athygli á Twitter á meðan á mótinu stendur eins og sjá má á þessari mynd sem hann birti eftir leik gegn Svíum.

Athugasemdir
banner
banner