Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason skoraði eitt af þremur mörkum sænska liðsins Malmö í forkeppni Meistaradeildarinnar á þessu þriðjudagskvöldi.
Malmö vann 3-0 sigur á Drita frá Kosóvó á útivelli og er því staða sænsku meistaranna mjög góð fyrir seinni leik liðanna í Svíþjóð.
Arnór Ingvi setti annað mark Malmö í kvöld á 39. mínútu. Arnór virðist vera að koma ferskur inn eftir HM með Íslandi, en þetta er annar leikurinn í röð sem hann skorar í.
Það hefur ekki gengið vel hjá Malmö í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og það er því kærkomið að fá góð úrslit í Meistaradeildinni.
Ef Malmö kemst áfram, eins og allt bendir til, verður næsti mótherji CFR Cluj frá Rúmeníu.
Athugasemdir