Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 10. júlí 2018 22:20
Mist Rúnarsdóttir
Pétur Péturs: Mótið ekki búið þó sumir haldi það
Pétur var svekktur eftir tap í toppslag
Pétur var svekktur eftir tap í toppslag
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
„Mér fannst Blikarnir betri en við í dag og þær áttu skilið að vinna leikinn. Svo einfalt er það,“ sagði svekktur Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir eins marks tap gegn Breiðablik í mikilvægum toppslag Pepsi-deildarinnar.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  0 Valur

„Þær voru miklu aggressívari og sköpuðu sér fleiri færi. Við byrjuðum leikinn ágætlega og fengum dauðafæri til þess að komast í 1-0 en eftir það fannst mér við ekki vera líkar sjálfum okkur.“

„Mér fannst við hörmulegar í öllum sendingum og ákvörðunartökum, sérstaklega í seinni hálfleik. Ef við höfðum opnanir til að gera eitthvað eða búa eitthvað til kom bara slæm sending. Þær spiluðu á breiki í seinni hálfleik og fengu allt upp í hendurnar í rauninni,“
sagði þjálfarinn sem var hundsvekktur með spilamennsku síns liðs. Hann er þó ekki búinn að leggja árar í bát enda mótið aðeins hálfnað.

„Það er nóg eftir af þessu móti. Við erum að spila við Selfoss næsta leik og vonandi rífum við okkur upp og gerum þetta betur en í kvöld. Svo er náttúrulega bikarleikur á móti Blikunum aftur eftir viku eða eitthvað svoleiðis. Ég vil meina að þetta mót sé ekki búið þó sumir haldi að þetta sé búið.“

Nánar er rætt við Pétur í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner