Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 10. júlí 2019 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forsvarsmenn Inter á leið til Englands vegna Lukaku
Mynd: Getty Images
Inter Milan hefur mikinn áhuga á því að fá Romelu Lukaku, framherja Manchester United, í sínar raðir. Samkvæmt heimildum Sky Sports News er Juventus einnig farið að sýna belgíska framherjanum áhuga.

Inter vill fá Belgann á lánssamningi út komandi tímabil og skuldbinda sig til þess að borga fyrir framherjann næsta sumar.

United vill fá 75 milljónir punda fyrir Lukaku og það strax í sumar ef það á að selja leikmanninn.

Samkvæmt Sky Sports eru forsvarsmenn Inter á leið til Englands til að semja við Rauðu Djöflanna um Lukaku.

Lukaku er á samningi út tímabilið 2021-22.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner