Augnablik tók í kvöld á móti FH í Fífunni í Inkasso-deild kvenna. FH var fyrir leikinn í toppsæti deildarinnar á meðan Augnablik var í því 7.
Markalaust var allt þar til á 84. mínútu þegar að Selma Dögg Björgvinsdóttir átti lokasnertinguna fyrir FH áður en boltinn rúllaði yfir línuna.
Augnablik sótti og sótti eftir þetta en tókst ekki að skora. FH styrkir stöðu sína á toppnum og er nú með 19 stig. Augnablik er áfram í 7. sæti með níu stig.
Athugasemdir