Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   fös 10. júlí 2020 23:35
Gylfi Tryggvason
Kjartan Stefáns: Auðvitað áttum við að fá víti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir tapaði 0-1 gegn Breiðablik í Mjólkurbikar kvenna í kvöld. Kjartan Stefánsson var svekktur með niðurstöðuna:

„Ég er fúll að tapa hér í dag. Eða, ég er hundfúll. Mér fannst við ekki byrja leikinn af þeim krafti sem við vildum en eftir svona 20 mínútur vorum við drullugóðar og mér fannst við betri en þær ef eitthvað er."

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  1 Breiðablik

„Við vorum að reyna að spila í svokalla millihæð, á milli lína. Mér fannst það takast ágætlega. Við keyrðum inn á miðsvæðið og mér fannst við opna þær þar tvisvar-þrisvar."

Fylkisstelpur voru að koma úr sóttkví. Fannst honum það hafa mikil áhrif?

„ Ég var hræddur fyrir leikinn um að þetta sóttkví sæti í þeim. Ég bjóst við aðeins meiri skjálfta en fannst við komast nokkuð vel frá þessu. Mér fannst við sýna þor og ákveðni í dag og ég var sáttur við margt í leiknum."

Hvað fannst honum um vítaspyrnudóminn sem aldrei varð?

„Auðvitað áttum við að fá víti í leiknum og svo eigum við að nýta þessi færi sem við fáum. Ég sá atvikið ekki vel en ég er búinn að sjá brot af því í síma og finnst þetta klárt víti."
Slapp
banner