Fotbolti.net
10.08.10 - 14:07
Magnús Már Einarsson

Boltum rignir yfir Jóhann Berg í viðtali

Auglýsing
Boltum rignir yfir Jóhann Berg í viðtali
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U21 árs landslið karla mætir Þjóðverjum í mikilvægum leik í undankeppni EM á Kaplakrikavelli á morgun en með sigri fer íslenska liðið langt með að tryggja sér sæti í umspili um sæti á EM.
U21 árs landsliðið æfði á Álftanesi í morgun og stemningin hjá leikmönnum var góð.

Leikmennirnir grínuðust meðal annars í Jóhanni Berg Guðmundssyni þegar hann var í viðtali en boltum var hent og sparkað í áttina að honum.

,,Í síðasta leik fór 2-2 og þetta er nokkurnvegin sama lið þannig að ég sé ekki fram á annað en að við getum unnið þá,\" sagði Jóhann Berg við Fótbolta.net.

,,Ef við vinnum þennan leik erum við svo gott sem komnir áfram og við förum í þennan leik til að vinna hann. Við ætlum okkur að vinna hann.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið þar sem boltunum rignir yfir Jóhann Berg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.