Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 10. ágúst 2018 14:41
Magnús Már Einarsson
Birkir Már æfði með liði í 3. deild tveimur mánuðum eftir HM
Birkir í baráttu við Messi á HM.
Birkir í baráttu við Messi á HM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson fór ekki með Val í leikinn gegn Sheriff frá Moldavíu í Evrópudeildinni í gær.

Birkir var í leikbanni og var því eftir heima á Íslandi. Birkir æfði á meðan með liði KH sem er í toppbaráttunni í 3. deildinni.

Ingólfur Sigurðsson segir frá þessu í skemmtilegri færslu á Twitter í dag.

Innan við tveir mánuðir eru síðan að Birkir var í eldlínunni á HM
þar sem hann mætti meðal annrs Lionel Messi.

Færslan hjá Ingólfi er hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner