Thibaut Courtois vildi ólmur losna frá Chelsea eftir að hann var valinn besti markvörður heimsmeistaramótsins í sumar er hann hjálpaði Belgum að landa bronsverðlaunum.
Courtois frétti af áhuga Real Madrid á sér og þegar Chelsea gerði sig líklegt til að hafna tilboði fór hann í verkfall og mætti ekki á æfingar þrátt fyrir að vera kominn heim úr sumarfríinu.
Real vildi einnig fá liðsfélaga Courtois í landsliðinu Eden Hazard til sín en Chelsea harðneitaði að selja kantmanninn knáa sem fór þó ekki í verkfall líkt og samlandi sinn.
Courtois kostaði um 35 milljónir punda og var kynntur sem leikmaður Real í gær og var spurður út í framtíð Eden Hazard á sínum fyrsta fréttamannafundi.
„Eden er stórkostlegur leikmaður og ég vil hafa hann með mér í liði. Það væri frábært að fá hann hingað einn daginn," sagði Courtois.
„Hann elskar að vinna titla og hann veit að Real Madrid elskar líka að vinna titla."
Athugasemdir