Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. ágúst 2018 21:20
Gunnar Logi Gylfason
Einkunnir Man Utd og Leicester: Luke Shaw maður leiksins
Luke Shaw var maður leiksins
Luke Shaw var maður leiksins
Mynd: Getty Images
Manchester United sigraði Leicester 2-1 á Old Trafford í kvöld í fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Pogba og Luke Shaw skoruðu mörk Manchester United og komu liðinu í 2-0.

Jamie Vardy minnkaði muninn fyrir gestina en nær komust þeir ekki. Hér fyrir neðan má sjá einkunnir leikmannanna frá Sky Sports.

De Gea, Shaw og Pogba fengu allir 8 í einkunn og var Shaw valinn maður leiksins.

Maddison var hæstur hjá gestunum með 7 í einkunn en þessi ungi Englendingur kom til liðsins frá Norwich í sumar.

Man Utd: De Gea (8), Darmian (6), Bailly (6), Lindelof (6), Shaw (8), Fred (7), A Pereira (7), Pogba (8), Mata (6), Rashford (6), Sanchez (6).

Varamenn: Lukaku (5), McTominay (5), Fellaini (5).

Leicester: Schmeichel (6), Amartey (4), Morgan (5), Maguire (6), Chilwell (5), Ndidi (5), Silva (6), R Pereira (6), Maddison (7), Gray (6), Iheanacho (6).

Varamenn: Vardy (6), Ghezzal (5), Iborra (5).

Maður leiksins: Luke Shaw.
Athugasemdir
banner
banner
banner