ÍBV og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli í kvöld í miklum baráttuleik.
„Fyrstu viðbrögð ég er ánægður að fá eitt stig á móti hörkuliði en svekktur að fá ekki þrjú stig mér fannst við gefa allt í þetta í dag og vera betri í 90. mínútur." Sagði Ian Jeffs Þjálfari ÍBV eftir leikinn

Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Breiðablik
Cloe virðist vera finna sitt gamla form eftir erfið meiðsli og var goð í dag. Hún skoraði einnig frábært mark fyrir ÍBV þegar hún jafnar leikinn.
„Bara allt sem hún gaf í leikinn hún bara hljóp endalaust þetta er Cloe sem ég þekkti í fyrra hún gaf allt í þetta. Hún skorar flott mark í dag en eins og allir hinir þá gaf hún allt í þetta."
ÍBV liðið barðist allan leikinn hver einasti leikmaður og Jeffsy var ánægður með sína leikmenn í dag.
„Ég get ekki kvartað neitt, ég þarf að horfa á þeirra mark aftur. Mér fannst vera rangstöðulykt af því og þarf að skoða það aftur en ég get ekki kvartað neitt. Breiðablik átti erfitt með að byggja upp sókn og ég er bara virkilega ánægður með hvernig leikmenn spiluðu leikinn."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir