Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. ágúst 2019 14:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Þriðji sigur Sindra í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hamrarnir 1 - 2 Sindri
0-1 Arna Ósk Arnarsdóttir ('45)
0-2 Jóna Benný Kristjánsdóttir ('47)
1-2 Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir ('78)

Sindri gerði góða ferð til Akureyrar þegar liðið heimsótti Hamrana í 2. deild kvenna í dag. Leikurinn var inn í Boganum.

Arna Ósk Arnarsdóttir, sem er fædd árið 2003, kom Sindra yfir rétt fyrir leikhlé og bætti Jóna Benný Kristjánsdóttir við öðru marki gestana þegar lítið var liðið af seinni hálfleik.

Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir minnkaði muninn fyrir heimakonur á 77. mínútu, en lengra komust þær ekki.

Lokatölur 2-1 fyrir Sindra í þessum eina leik dagsins í 2. deild kvenna. Sindri hefur unnið þrjá leiki í röð og er í þriðja sæti með 15 stig. Hamrarnir eru í sjötta sæti með 10 stig.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner