Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. ágúst 2019 21:52
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Ljubomir Delic hetja KF gegn Sindra
Ljubomir Delic skoraði sigurmark KF í blálokin
Ljubomir Delic skoraði sigurmark KF í blálokin
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sindri 1 - 2 KF
1-0 Þorlákur Helgi Pálmason ('45 )
1-1 Jordan Damachoua ('71 )
1-2 Ljubomir Delic ('90 )

KF skoraði flautumark í 2-1 sigri á Sindra í 3. deild karla í kvöld en leikurinn fór fram á Sindravöllum.

Þorlákur Helgi Pálmason kom Sindra yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en Jordan Damachoua jafnaði metin á 71. mínútu.

Það voru meira en sex mínútur liðnar af uppbótartíma síðari hálfleiks er Ljubomir Delic gerði sigurmark KF.

Dramatík og sigur KF bókstaflega í Höfn. KF er í 2. sæti með 38 stig á meðan Sindri er í 8. sæti með 18 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner