Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 10. ágúst 2019 17:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Breiðablik spilar hreinan úrslitaleik á þriðjudag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vann í morgun risasigur gegn Dragon 2014 frá Norður-Makedóníu í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Lokatölur urðu 11-0 fyrir Breiðablik. Berglind Björg Þorvaldsdóttir gerði fjögur, Hildur Antonsdóttir og Selma Sól Magnúsdóttir tvö, Alexandra Jóhannsdóttir, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eitt mark.

Í þessari forkeppni er leikið í fjögurra liða riðlum. Sigurliðið úr hverjum riðli fer í 32-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Breiðablik hefur unnið báða leiki sína og mun á þriðjudaginn mæta Sarajevo í hreinum úrslitaleik, en bæði lið hafa unnið báða leiki sína.

Sarajevo vann Asa Tel-Aviv 1-0 núna áðan. Jafntefli dugir því Blikum sem eru með betri markatölu.

Leikurinn gegn Sarajevo er klukkan 15:00 á þriðjudag. Sarajevo er á heimavelli þar sem riðillinn fer fram í Bosníu.
Athugasemdir
banner
banner