Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. ágúst 2019 13:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Forest fór til Leeds og stal stigi
Pablo Hernandez skoraði fyrir Leeds.
Pablo Hernandez skoraði fyrir Leeds.
Mynd: Getty Images
Leeds 1 - 1 Nott. Forest
1-0 Pablo Hernandez ('59 )
1-1 Lewis Grabban ('77 )

Fyrsti leikur dagsins í Championship-deildinni er búinn. Leeds tók á móti Nottingham Forest.

Spánverjinn Pablo Hernandez kom Leeds yfir þegar rétt tæpur klukkutími var liðinn af leiknum, en það var Lewis Grabban sem kom í veg fyrir sigur Leeds á 77. mínútu. Hann jafnaði þá eftir Leeds mistókst að koma boltanum í burtu eftir hornspyrnu.

Leeds var sterkari aðilinn í leiknum en það er ekki alltaf spurt að því í fótbolta.

Lærisveinar Marcelo Bielsa í Leeds eru með fjögur stig eftir tvo leiki og Nottingham Forest með eitt stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner