Kjartan Henry Finnbogason var á sínum stað í byrjunarliði Vejle þegar liðið mætti Vendsyssel í dönsku B-deildinni í dag.
Leiknum lauk með öruggum 3-0 sigri Vejle en Kjartan átti þátt í markinu sem að kom Vejle á bragðið í leiknum.
Leiknum lauk með öruggum 3-0 sigri Vejle en Kjartan átti þátt í markinu sem að kom Vejle á bragðið í leiknum.
Hann átti þá sendingu á Serhiy Hryn sem átti fyrirgjöf inn í teig og þar var Diego Montiel búinn að koma sér vel fyrir og setti boltann í netið.
Hryn bætti við öðru marki fyrir Vejle þegar tíu mínútur voru til hálfleiks. Leikmaður Vendsyssel varð síðan fyrir því óláni að setja boltann í eigið net í upphafi síðari hálfleiks en það reyndist síðasta mark leiksins.
Þetta var fyrsti sigur Vejle í deildinni í ár en eftir þrjá leiki í deildinni er liðið með fjögur stig. Næsti leikur liðsins er gegn FC Fredricia á miðvikudag.
Kjartan fører bolden frem i en omstilling. Finder Gryn til venstre, der med en uselvisk aflevering ser Diego i feltet. Svenskeren tager en berøring, inden han scorer med et godt yderligt spark. (0-1) #VENVB #VejleB
— Vejle Boldklub (@Vejle_B) August 10, 2019
Athugasemdir