Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. ágúst 2019 20:07
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Rúnar spilaði í tapi
Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson og hans menn í Dijon töpuðu fyrir St. Etienne, 2-1, í fyrstu umferð frönsku fyrstu deildarinnar í dag.

Rúnar Alex spilaði allan leikinn fyrir Dijon en St. Etienne komst tveimur mörkum yfir á fyrstu ellefu mínútunum áður en Julio Tavares minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks.

Nice vann þá Amiens 2-1 en Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal og franska landsliðsins, er þjálfari liðsins.

Lyon vann þá Mónakó í gær, 3-0. Moussa Dembele, Memphis Depay og Lucas Tousart gerðu mörkin en Cesc Fabregas var rekinn af velli eftir aðeins hálftíma.

Paris Saint-Germain spilar þá gegn Nimes á morgun en Neymar verður ekki með liðinu. Hann virðist vera á leið frá félaginu en Real Madrid er í viðræðum við PSG.
Athugasemdir
banner
banner