Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. ágúst 2019 19:27
Brynjar Ingi Erluson
Kane: Vitum að við erum með gæði
Harry Kane var sáttur með frammistöðuna í dag
Harry Kane var sáttur með frammistöðuna í dag
Mynd: Getty Images
Harry Kane, framherji Tottenham Hotspur, var að sjálfsögðu ánægður með 3-1 sigurinn á Aston Villa í dag en hann skoraði tvö mörk fyrir liðið undir lok leiks.

Tottenham lenti óvænt undir á 9. mínútu með góðu marki frá John McGinn en Tottenham mætti inn í síðari hálfleikinn af krafti og náði í sigur undir lokin.

Kane skoraði tvö mörk á lokamínútum leiksins en hann var ánægður með framlag liðsins.

„Við komum inn í síðari hálfleikinn með hátt tempó og pressuðum vel á þá. Eftir markið hans Tanguy þá keyrðum við á þá og sem betur fer fékk ég tvö færi og nýtti þau," sagði Kane.

„Það er alltaf gott að ná í þrjú stig í fyrsta leik og sérstaklega á heimavelli. Við vitum að við erum með gæðin og við höfum tekið þátt í stórum leikjum en það er undir leikmönnum komið hvernig við spilum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner