Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson batt lokahnútinn á öruggan sigur Burnley gegn Southampton í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Jóhann Berg skoraði þriðja mark Burnley þegar stundarfjórðungur var eftir. Hann vann boltann og lagði boltann snyrtilega í netið. Frábært einstaklingsframtak hjá Jóhanni.
Áður en Jóhann Berg skoraði hafði Ashley Barnes skorað tvennu, í bæði skiptin eftir undirbúning frá Erik Pieters.
Það má sjá mark Jóa Berg með því að smella hérna.
Athugasemdir