Bandaríski leikarinn Will Ferrell var óvæntur gestur á leik Portsmouth og Tranmere í ensku C-deildinni í dag.
Ferrell, sem er einn af eigendum Los Angeles FC í MLS-deildinni, er mikill knattspyrnuaðdándi en hann heldur með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.
Ferrell er þekktur fyrir mörg hlutverk en þá sérstaklega hlutverk Ron Burgundy í Anchorman og ekki má gleyma karakternum Ricky Bobby úr Talladega Nights.
Hann mætir reglulega á leiki á Englandi en hann var óvænt mættur að horfa á Portsmouth vinna Tranmere Rovers 2-0 í ensku C-deildinni í dag.
Michael Eisner, eigandi Portsmouth, bauð Ferrell að koma en þeir þekkjast afar vel. Eisner var eitt sinn framkvæmdastjóri Walt Disney en það fór vel á með þeim á leiknum
💙 Stay classy, #Pompey pic.twitter.com/Xy77RTYWav
— Portsmouth FC (@Pompey) August 10, 2019
Athugasemdir