Fotbolti.net
10.08.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Víkingur tekur formlega við íþróttamannvirkjum í Safamýri

Víkingur tekur formlega við íþróttamannvirkjum í Safamýri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnufélagið Víkingur hefur tilkynnt formlega að félagið er tekið við rekstri íþróttamannvirkja í Safamýrinni. Víkingur R. er því nýja hverfisfélagið í Safamýrinni eftir brottför Fram.

Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Víkings eru með heimavöll í Fossvoginum og taka við Safamýrinni af Fram sem nýtti sér íþróttamannvirkin þar í nokkur ár á meðan á framkvæmdum stóð í Úlfarsárdal.

Á næstu vikum munu nýjar merkingar koma á mannvirkin sem fara í úttekt, tiltekt og viðhald að innan sem utan. Víkingur fer í það stóra verkefni með aðstoð frá Reykjavíkurborg.

„Við erum afar stolt að fá þetta hlutverk að vera nýja hverfisfélagið í Safamýri. Við lofum að við munum vinna á einlægan máta með hverfisbúum á öllum aldri til að skapa öflugt og fjölbreytt íþróttastarf í hverfinu. Við munum um leið veita góða þjónustu til allra og vera til staðar," segir Björn Einarsson, formaður Víkings.

„Við reiknum með að þessi vinna taki 2-3 vikur og stefnum við á að opna endurbætt mannvirki í Safamýri frá og með mánudeginum 22/08 næstkomandi eða á sama tíma og nýtt skólaár er að hefjast.

„Félagið mun eiga fundi með leikskólum og hverfisskólum áður en nýtt skólaár hefst. Þá eru fyrirhugaðir fundir með foreldrafélögum skólanna snemma í september. Nýjar æfingatöflur munu verða kynntar fyrir nýtt skólaár á miðlum félagsins. Einnig erum við að undirbúa Hverfishátíð í ágúst og munum við staðfesta og auglýsa hana nánar síðar. Þá ætlum við að hafa upplýsingafund fyrir hverfið í kringum næstu mánaðamót."

Ráðnir hafa verið starfsmenn í mannvirkin og er Guðbjörg Hjartardóttir ný rekstrarstýra.

Víkingur tekur formlega við íþróttamannvirkjum í Safamýri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.