Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 10. september 2018 11:34
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Birkir Bjarna skokkaði með sjúkraþjálfara
Icelandair
Birkir og Stefán Stefánsson sjúkraþjálfari skokka fyrir æfinguna í dag.
Birkir og Stefán Stefánsson sjúkraþjálfari skokka fyrir æfinguna í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason æfði ekki með öðrum í hópnum þær 15 mínútur sem fjölmiðlamenn fengu að fylgjast með landsliðsæfingu í dag.

Birkir skokkaði með einum af sjúkraþjálfurum landsliðsins.

„Birkir Bjarnason fann aðeins til í bakinu eftir leikinn gegn Sviss en ég held og vona að allir verði klárir á morgun," sagði Erik Hamren landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í dag.

Emil Hallfreðsson ætti að vera klár í slaginn en Hamren sagði það á fundinum. Emil hitaði upp með öðrum í hópnum.

Hafliði Breiðfjörð tók meðfylgjandi myndir á æfingu í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner