Strákarnir okkar mættu nú í morgun á sína síðustu æfingu fyrir leikinn gegn Frökkum annað kvöld. Æfingin var haldin á keppnisvellinum, Stade de Roudourou í bænum Guingamp, en hann er helst merkilegur fyrir þær sakir að taka tæplega 20.000 manns í sæti þrátt fyrir að íbúar bæjarins telji ekki nema rétt rúmlega 9.000
Sverrir Ingi var fjarverandi á æfingunni vegna veikinda en einnig var Emil Hallfreðsson í sérmeðferð sjúkraþjálfara og óvíst með þátttöku þeirra í leiknum á morgun.
Athugasemdir