Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 10. október 2018 12:44
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu úr leiknum - Sjö mörk síðast þegar Ísland mætti Frakklandi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðast þegar Ísland mætti Frakklandi voru skoruð sjö mörk. Frakkar lögðu Ísland 5-2 á Stade de France í 8-liða úrslitum Evrópumótsins 2016.

Birkir Bjarnason og Kolbeinn Sigþórsson skoruðu mörk Íslands í þeim leik en þeir eru báðir í íslenska hópnum sem mætir Frökkum í vináttulandsleik í Guingamp annað kvöld.

Mörk Frakka í leiknum skoruðu þeir: Olivier Giroud (2), Paul Pogba, Antoine Griezmann og Dimitri Payet.

Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leiknum á EM.


Athugasemdir
banner
banner
banner