Byrjunarlið ÍBV og Keflavíkur: Nacho og Joey ekki með og Guðjón Ernir snýr aftur

Guðjón Ernir tók út leikbann gegn FH en kemur aftur inn núna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nacho Heras er ekki með Keflavík í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Ernir tók út leikbann gegn FH en kemur aftur inn núna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV tekur á móti Keflavík í neðri hluta Bestu-deildar karla klukkan 15:15 í dag. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.
ÍBV vann 2 - 1 sigur á FH á miðvikudaginn var. Frá þeim leik gerir Hermann Hreiðarsson þjálfari liðsins gerir eina breytingu á liðinu. Guðjón Ernir Hrafnkelsson kemur til baka eftir að hafa tekið út leikbann og Felix Örn Friðriksson sest á bekkinn.
Keflavík vann 3 - 2 sigur á ÍA á heimavelli á sunnudaginn fyrir viku. Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari liðsins gerir tvær breytingar.
Joey Gibbs tekur út leikbann vegna fjögurra áminninga og Adam Árni Róbertsson byrjar í hans stað í framlínunni. Þá kemur Ásgeir Páll Magnússon inn fyrir Nacho Heras sem er ekki í leikmannahópnum.
Byrjunarlið ÍBV
- 1. Jón Kristinn Elíasson (m)
- 2. Sigurður Arnar Magnússon
- 7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
- 8. Telmo Ferreira Castanheira
- 14. Arnar Breki Gunnarsson
- 22. Atli Hrafn Andrason
- 23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
- 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
- 42. Elvis Okello Bwomono
- 80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Byrjunarlið Keflavík
- 21. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
- 5. Magnús Þór Magnússon (f) (f)
- 6. Sindri Snær Magnússon
- 7. Rúnar Þór Sigurgeirsson
- 9. Adam Árni Róbertsson
- 10. Kian Paul James Williams
- 22. Ásgeir Páll Magnússon
- 24. Adam Ægir Pálsson
- 25. Frans Elvarsson (f)
- 26. Dani Hatakka
- 77. Patrik Johannesen

Nacho Heras er ekki með Keflavík í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
