Frimpong orðaður við Liverpool - City reynir við Reijnders - Man Utd ætlar ekki að losa sig við Amorim
   mán 10. október 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Piers Morgan formlega kominn á Arteta vagninn
Fjölmiðlamaðurinn málglaði Piers Morgan er stuðningsmaður Arsenal og liggur ekki á skoðunum sínum. Hann viðurkennir að hann 'elski' hvernig Arsenal sé að spila undir stjórn Mikel Arteta.

Arsenal hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu og trónir á toppnum. Liðið vann Liverpool í gær.

Morgan lýsti yfir fullu trausti á Arteta á Twitter eftir leikinn og sagðist hafa mikla trú á vegferð liðsins undir hans stjórn,

„Þú hefur búið til stórskemmtilegt lið sem er pakkfullt af orku, hraða, krafti, skuldbindingu og brennandi sigurvilja. Elska hvernig við spilum og hvernig hugarfarið er. Ég hafði efasemdir um þig en ekki lengur. Haltu áfram á þessari braut," skrifaði Morgan.

Morgan hafði ekki mikla trú á Arteta og kallaði eftir því að hann yrði rekinn fljótlega eftir að hann gerði nýjan samning á síðasta ári. Skoðun hans hefur nú breyst.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 36 25 8 3 83 37 +46 83
2 Arsenal 36 18 14 4 66 33 +33 68
3 Newcastle 36 20 6 10 68 45 +23 66
4 Man City 36 19 8 9 67 43 +24 65
5 Chelsea 36 18 9 9 62 43 +19 63
6 Aston Villa 36 18 9 9 56 49 +7 63
7 Nott. Forest 36 18 8 10 56 44 +12 62
8 Brentford 36 16 7 13 63 53 +10 55
9 Brighton 36 14 13 9 59 56 +3 55
10 Bournemouth 36 14 11 11 55 43 +12 53
11 Fulham 36 14 9 13 51 50 +1 51
12 Crystal Palace 36 12 13 11 46 48 -2 49
13 Everton 36 9 15 12 39 44 -5 42
14 Wolves 36 12 5 19 51 64 -13 41
15 West Ham 36 10 10 16 42 59 -17 40
16 Man Utd 36 10 9 17 42 53 -11 39
17 Tottenham 36 11 5 20 63 59 +4 38
18 Ipswich Town 36 4 10 22 35 77 -42 22
19 Leicester 36 5 7 24 31 78 -47 22
20 Southampton 36 2 6 28 25 82 -57 12
Athugasemdir
banner
banner