Fotbolti.net
10.10.22 - 08:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Styttist i stóru stundina - Stelpurnar æfa á keppnisvellinum í dag

Styttist i stóru stundina - Stelpurnar æfa á keppnisvellinum í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Á morgun er einn stærsti leikdagur í sögu íslenska kvennalandsliðsins, hjá stelpunum okkar.

Þær mæta þá Portúgal í umspili fyrir HM. Þetta er hreinn úrslitaleikur þar sem sigurliðið kemur til með að vinna sér sæti á HM sem fram fer á næsta ári - eða þá inn í annað umspil sem fram fer í Nýja-Sjálandi í febrúar á næsta ári.
Morgundagurinn verður allavega stór fyrir liðið þar sem allt er undir. Ísland er að reyna að komast inn á HM í fyrsta sinn.

Fréttateymi Fótbolta.net er komið til Porto í Portúgal eftir langan ferðadag í gær.

Í dag verða viðtöl við leikmenn og þjálfara íslenska liðsins og þá verður æfing á keppnisvellinum seinni partinn. Leikurinn fer fram á Capital do Móvel, sem er heimavöllur portúgalska úrvalsdeildarfélagsins Paços de Ferreira.

Liðið hefur verið við æfingar í Portúgal síðustu daga og núna styttist í stundina stóru.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.