West Brom 4 - 1 Leeds
1-0 Robson-Kanu ('51 )
2-0 Phillips ('67 )
3-0 Barnes ('82 )
4-0 Gayle ('83 )
4-1 Pablo Hernandez ('90 )
1-0 Robson-Kanu ('51 )
2-0 Phillips ('67 )
3-0 Barnes ('82 )
4-0 Gayle ('83 )
4-1 Pablo Hernandez ('90 )
West Brom kom í veg fyrir það að Leeds kæmist aftur á toppinn í Championship-deildinni. Þessi lið mættust í síðasta leik dagsins í deildinni í kvöld.
Fyrri hálfleikurinn var markalaus en í upphafi seinni hálfleiks skoraði Hal Robson-Kanu fyrir West Brom. Matt Phillips bætti við öðru marki á 67. mínútu. Harvery Barnes skoraði þriðja mark West Brom á 82. mínútu og í næstu sókn var Dwight Gayle búinn að bæta við fjórða markinu. West Brom að valta yfir Leeds.
Spánverjinn Pablo Hernandez klóraði í bakkann fyrir Leeds þegar lítið var eftir en það breytti litlu.
Lærisveinar Marcelo Bielsa í Leeds áttu ekki möguleika í seinni hálfleiknum gegn West Brom.
West Brom er í fimmta sæti með 28 stig en Leeds er í þriðja sæti með 30 stig.
Sjá einnig:
Úrslitin úr hinum leikjum dagsins í Championship-deildinni.
Athugasemdir