lau 10. nóvember 2018 18:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jóhann Berg fær ágætis einkunn frá Sky Sports
Mynd: Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson spilaði 65 mínútur þegar Burnley gerði markalaust jafntefli gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta var fyrsti heimaleikur Leicester frá því eigandi félagsins, Vichai Srivaddhanaprabha, og fjórir aðrir einstaklingar létust í þyrluslysi fyrir utan heimavöll liðsins. Þetta var því skiljanlega tilfinningaþrunginn leikur.

Hér að neðan eru einkunnir Sky Sports úr leiknum. Jóhann Berg fær ágætis einkunn.

Matt Lowton, bakvörður Burnley, var maður leiksins.

Leicester: Schmeichel (6), Chilwell (6), Morgan (6), Evans (6), Pereira (6), Mendy (6), Ndidi (6), Albrighton (7), Ghezzal (5), Gray (6), Vardy (6).

Varamenn: Ihaenacho (4), Okazaki (6).

Burnley: Hart (7), Lowton (7), Long (7), Mee (7), Taylor (7), Guðmundsson (6), Defour (6), Cork (6), Lennon (6), Vokes (5), Wood (5).

Varamenn: Brady (6), Hendrick (6).

Maður leiksins: Matt Lowton.

Sjá einnig:
England: Rondon er hetjan í Newcastle
Athugasemdir
banner
banner