Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. nóvember 2018 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Solari: Ramos er hugrakkur og heiðarlegur
Mynd: Getty Images
Santiago Solari, sem stýrir Real Madrid þessa daganna, hefur komið varnarmanninum Sergio Ramos til varnar eftir ljótt olnbogaskot hans gegn Viktoria Plzen í Meistaradeildinni síðastliðinn miðvikudag.

Milan Havel nefbrotnaði eftir olnbogaskotið en atvik sem þessi eru algeng þegar Ramos er á vellinum.

Ramos segir að olnbogaskotið hafi verið óvart en efasemdir hafa vaknað um það.

Solari er ekki einn af þessum efasemdarmönnum. Hann telur að olnbogaskotið hafi verið óvart.

„Ramos er hugrakkur og heiðarlegur maður," sagði Solari við blaðamenn fyrir leik Real Madrid og Celta Vigo sem er annað kvöld.

„Allir sem hafa spilað fótbolta vita að þetta er ekki íþrótt án snertinga. Það var enginn ásetningur í þessu."

Smelltu hér til að sjá atvikið. Ramos lyftir höndinni og rekur olnbogann í andlitið á Havel.
Athugasemdir
banner
banner
banner