CharityShirts hefur undanfarna mánuði staðið fyrir leik þar sem þeir sem taka þátt fara í lottópott og einn heppinn vinnur treyjuna.
Aðeins þarf að greiða 1000 krónur og svo er dreginn út vinningshafi.
Á dögunum var boðin upp treyja Böðvars Böðvarssonar leikmanns Białystok í Póllandi.
Það er gaman frá því að segja að sá sem hreppti treyjuna var enginn annar en Atli Guðnason fyrrverandi liðsfélagi Böðvars Böðvarssonar í FH.
Þessa dagana stendur yfir uppboð á treyju Óttars Magnúsar Karlssonar. Kynntu þér málið á vef CharityShirts.
Athugasemdir