Phil Foden er nálægt því að ganga frá nýjum langtímasamningi við Manchester City.
Hinn 18 ára gamli Foden á eitt og hálf ár eftir af núverandi samningi sínum við City.
Foden spilaði sinn fyrsta leik með aðalliði City á síðasta tímabili og hann hefur komið við sögu í 22 leikjum síðan þá.
Foden er mikið efni og City leggur mikla áherslu á að halda honum.
City missti Jason Sancho til Dortmund í sumar og hinn 19 ára gamli Brahim Diaz gæti verið á förum. Ensku meistararnir vilja ekki að Foden fari sömu leið og hann ætti að skrifa undir nýjan samning á næstunni.
Athugasemdir